LineFTA Logo- HjólastólanotendurHjólastólanotendur Göngu-, handleggja- og handaskertirGöngu-,
handleggja- og handaskertir
Blindir og sjónskertirBlindir og sjónskertir HeyrnaskertirHeyrnaskertir Astma og ofnæmiFólk með astma og ofnæmi ÞroskahömlunÞroskahömlun LestrarörðugleikarLestrarörðugleikar
*Menu
*Pil Leita
*Pil Leit eftir flokkum
*Pil Um merkjakerfið
*Pil Hvað er aðgengi
*Pil Um Aðgengismerkjakerfið
*Pil Hverjum nýtast merkin
*Pil Hafa samband





*Udskriv denne side    Tekststørrelse Større font *Mindre font
Dansk English Deutsch Svensk

Hverjum nýtast merkin

Sé miðað við sömu hlutföll og  á hinum Norðurlöndunum þá má áætla að um 60.000 Íslendingar eigi við væga eða alvarlega fötlun að stríða og mun hafa not af aðgengismerkjakerfinu.
Skv. vef Tryggingastofnunar Íslands eru u.þ.b. 15.000 Íslendingar á aldrinum 18 til 67 ára metnir 75% örorkulífeyrisþegar eða meira og u.þ.b. 25.000 Íslendingar eru 67 ára eða eldri.

Fleiri eldri borgarar auka þörfina fyrir gott aðgengi

Fötlun af ýmsu tagi verður eðlilega algengari með hækkandi aldri. Auk þess er það staðreynd að gömlu fólki mun fjölga hlutfallslega á komandi árum og verða stærri hluti þjóðarinnar.
Mat byggt á þessum upplýsingum sýnir því að tæplega 60.000 Íslendingar eigi við fötlun í einhverri mynd að stríða og eru þar með mögulegir notendur Aðgengismerkjakerfisins.

Fjölskylda og vinir

Einnig þarf að reikna með að fjölskylda og vinir fatlaðra einstaklinga séu einnig mögulegir notendur. Fatlaðir einstaklingar hafa einnig þörf fyrir að ferðast, fara í frí  og upplifa nýja og spennandi hluti með vinum sínum og fjölskyldu.
Fjölskyldumeðlimir og vinir sem ferðast með fötluðum einstaklingi eru því einnig háðir því að gott aðgengi sé fyrir hendi á áfangastöðunum og að góðar notendaupplýsingar um aðgengi séu til staðar. Af þessu má ætla að neytendahópur Aðgangsmerkjakerfisins, að meðtöldum vinum og fjölskyldu, sé  um 120.000 manns á Íslandi.
Séu þessar tölur færðar yfir á evrópskt plan má ætla að hreyfihömlun og vandamál tengd aðgengi snerti u.þ.b. 100 milljónir manna, þ.m.t. vinir og ættingjar, bæði í hversdagslífinu sem í fríum og á ferðalögum. Aðeins þessi hluti íbúa Evrópu, sem hreyfihömlun hefur áhrif á, er því stór markhópur fyrir ferðaiðnaðinn í Evrópu sem íslenski ferðaiðnaðurinn er jú  hluti af.

 



til topGå til top
Nye mærker
Skjaldarvík
Skjaldarvík >