
Hjólastólanotendur
Göngu-,
Blindir og sjónskertir
Heyrnaskertir
Fólk með astma og ofnæmi
Þroskahömlun
Lestrarörðugleikar
Upplýsingar um aðgengi að byggingum eða mannvirkjum geta gert gæfumuninn milli árangurs og mistaka hjá mjög mjörgum sem glíma við fötlun af einhverju tagi. Til að geta skipulagt bæjarferð, heimsókn á safn, sumarfrí eða þátttöku í ráðstefnu geta upplýsingar um aðgengi ráðið úrslitum um hvort ferðin heppnist vel. Það er afar leitt þegar hjólastólanotendur komast ekki inn um aðaldyrnar vegna þess að þær eru of þröngar, eða ef manneskja með ofnæmi verður að snúa frá vegna þessa að hundar hafa verið á staðnum.
Þegar upplýsingar um aðgengi eru fyrirliggjandi geta allir valið og skipulagt sjálfir leið sína og farið hvert sem þeir vilja. Væntingarnar verða rauhæfar og hægt að gera varúðarráðstafanir. Það gerir ferðina betri fyrir bæði gestinn og starfsfólkið.
Aðgengismerkjakerfið veitir upplýsingar um aðgengi að byggingum og útisvæðum ætluð almenningi. Á www.adgengi.is / AccessIceland.is finnur þú nákvæmar upplýsingar um stöðu aðgengismála á þeim stöðum sem eru aðilar að merkjakerfinu. Það gerir hversdaslífið þægilegra fyrir einstaklinga með skerta færni.